Heimilisfang: Hringbraut, 101 Reykjavík
Símanúmer: 513 6790
Þarf tilvísun?
Tilvísun frá hverjum? Heilbrigðisstarfsfólki, Meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar, Varðstjórum
Er úrræðið niðurgreitt?
Geðteymi fangelsa
2. stigs þjónusta

Þjónusta Geðheilsuteymis fangelsa HH er fyrir fólk sem er í afplánun í fangelsi og hefur því ekki aðgang að geðheilbrigðisþjónustu á sinni heilsugæslu eða öðrum stofnunum.  Þjónustan nær einnig til þeirra sem eru á reynslulausn. Geðheilsuteymi fangelsa HH þjónar öllum fangelsum landsins.

Þjónusta teymisins er fyrir fólk sem er í afplánun í fangelsi. Geðheilsuteymi fangelsa þjónar öllum fangelsum landsins. Geðheilsuteymið sinnir almennri geðheilbrigðisþjónustu svo sem greiningu og meðferð geðraskana, fíknivanda og ADHD. Þjónustan er þverfagleg og er veitt með:

  • Heimsóknum í fangelsin
  • Símaviðtölum
  • Fjarfundabúnaði

Geðheilsuteymi fangelsa vísar einnig á aðra geðheilbrigðisþjónustu sem þörf er á.

Skipulag og stundaskrár

Tengd úrræði

Safnaðarheimili háteigskirkju
Bjargráð - aðstoð fyrir fjölskyldur fanga
Scroll to Top