Einhverfusamtökin
Í hnotskurn
Þjónusta
8
Fyrir hverja?
Í einhverfusamtökunum eru einhverft fólk, foreldrar, aðstandendur, fagfólk og öll þau sem áhuga hafa á málefnum fólks á einhverfurófi (autism spectrum).
Hvert er markmiðið?
Starfsemi samtakanna beinist meðal annars að því að bæta þjónustu við einhverfa, standa vörð um lögbundin réttindi þeirra og stuðla að fræðslu um málefni fólks á einhverfurófi.
Samtökin leggja áherslu á sýnileika með það að markmiði að geta orðið að liði þar sem þörfin á stuðningi og aðstoð er fyrir hendi. Við fylgjumst með setningu laga og reglugerða sem snerta okkar félagsmenn og gefum álit. Einnig fylgjumst við með starfi sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar
Samtökin eru í samvinnu við ýmis önnur hagsmunafélög til að reyna að hafa jákvæð áhrif á ýmis baráttumál samtakanna. Helstu baráttumál samtakanna hafa verið stytting biðlista eftir greiningu, búsetumál, atvinnumál og skólamál.
Annar mikilvægur þáttur í starfi Einhverfusamtakanna eru umræðuhópar fyrir einhverft fólk, borðspilahópur og handavinnuhópur. Við höfum reglulega staðið fyrir ráðstefnum og kynningarfundum.