Bæta við úrræði
Bæta við fagaðila
Bæta við samtökum
Bæta við æfingum
Bæta við slökun
Bæta við fræðsluefni
Bæta við vefsíðu
Bæta við smáforriti
Bæta við hlaðvarpi
Bæta við hlaðvarpsþætti
Bæta við bók
Bæta við tímariti

Reykjalundur hjartateymi

Í hnotskurn

Þarf tilvísun?
Staðsetning: Allt landið, Mosfellsbær
Aldursflokkur: Fullorðnir
Tilvísun frá hverjum? Lækni
Er úrræðið niðurgreitt?
Hvernig er aðgengið? Ágætt, fólk kemst flest án aðstoðar
Opnunartími: Meðferð fer fram milli 8 og 16 alla vira daga.

Þjónusta

Félagsráðgjöf ♥ Fræðsla ♥ Göngur ♥ Handverkshópur ♥ Iðjuþjálfun ♥ Læknismeðferð ♥ Námskeið ♥ Næringarráðgjöf ♥ Sálfræðiþjónusta ♥ Sjúkraþjálfun ♥ Skapandi starf ♥ Svefnfræðsla ♥ Vatnsleikfimi

Fyrir hverja?

Einstaklinga með nýgreindan hjartasjúkdóm eða eftir nýtt inngrip vegna þekkts hjartasjúkdóms.

Einstaklinga sem hafa farið í stofnfrumumeðferð vegna krabbameins.

Hvert er markmiðið?

Markvisst er unnið að því í hjartaendurhæfingunni að aðstoða einstaklinga við að þekkja og takast á við sína áhættuþætti fyrir hjartasjúkdómum. Má þar til dæmis nefna ofþyngd, sykursýki, streitu, tóbaksnotkun og hreyfingarleysi. Hægt er að hafa áhrif á þessa þætti til hins betra.

Nánari upplýsingar

Grundvallarstefna hjartateymis er að veita faglega hjartaendurhæfingu sem byggir á niðurstöðum nýjustu viðurkenndra vísindarannsókna. Í hjartateymi starfa félagsráðgjafi, heilsuþjálfari, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, læknar, næringarfræðingur, sálfræðingur, sjúkraþjálfarar og deildarritari.

Áhersla er lögð heildræna meðferð þar sem meginþættir eru líkamleg þjálfun, aðstoð við sálræna, félagslega og líkamlega aðlögun, meðferð áhættuþátta og fræðsla. Markmiðið er að stuðla að auknu öryggi og lífsgæðum sem vinna má að áfram á eigin spýtur í framhaldi endurhæfingar.

Ertu með ábendingar um þetta úrræði sem þú vilt koma á framfæri?
Hafa samband vegna úrræðis

Tengd úrræði

Engin tengd úrræði fundust.