Bæta við úrræði
Bæta við fagaðila
Bæta við samtökum
Bæta við æfingum
Bæta við slökun
Bæta við fræðsluefni
Bæta við vefsíðu
Bæta við smáforriti
Bæta við hlaðvarpi
Bæta við hlaðvarpsþætti
Bæta við bók
Bæta við tímariti

Hannyrða- og bókahittingur

Efnisflokkur: Handverk, Samvera, Virkni
Aldursflokkur: Fullorðnir
Nánari upplýsingar

Ertu ástríðufullur prjónari eða heklari sem elskar líka að lesa og spjalla um skemmtilegar bækur? Þá er þessi hittingur á bókasafninu eitthvað fyrir þig.

Það er gaman að sameina þessi tvö áhugamál og enn betra að geta hitt góðan hóp sem deilir þessari ástríðu.
Við ætlum að koma saman á Hannyrðahorninu á 2. hæð í Borgarbókasafninu Grófinni frá september - maí.

Umsjón með hittingnum hefur Guðrún Dís, áhugasamur nýgræðingur í hannyrðum  sem mun halda utan um hópinn, koma með hugmyndir að skemmtilegu lesefni og leiða spjallið.

Ekki er um hefðbundinn leshring að ræða og því þarf ekki að lesa ákveðnar bækur fyrir hvern hitting, aðeins mæta á staðinn og taka þátt í spjallinu. Hópurinn mótar síðan framhaldið í sameiningu.

Hittingarnir fara fram á íslensku og/eða ensku og tekur mið af samsetningu hópsins.

Engin skráning og þú mætir bara þegar þig langar í félagsskap.

les og hannyrðahópur
Dagsetning: Á hverjum fimmtudegi
Tímasetning: 15:00 - 17:00
Kostnaður: Enginn kostnaður
Hvar: Borgarbókasafninu Grófinni, 2. hæð
Heimilisfang: Tryggvagata 15, 101 Reykjavík
Netfang: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is