Mjúkt jóga og slökun (yoga nidra)
Nánari upplýsingar
Sex vikna námskeið í jóga með áherslu á slökun og andlega uppbyggingu.
- Tilvalið fyrir alla þá sem elska rólegt jóga, góða slökun og næringu fyrir andann.
- Námskeiðið er fyrir byrjendur jafnt sem reyndari jógaiðkendur.
- Hentar vel þeim sem eru að glíma við þreytu, streitu og álag og vilja endurheimta orku sína og læra aðferðir til slökunar.
Tímarnir geta einnig nýst þeim sem þurfa að fara varlega, eru e.t.v. að ná sér eftir veikindi og eiga erfitt með hefðbundna jógatíma.
Námskeiðið felur í sér:
- Mildar æfingar sem miðast að því að losa spennu úr líkamanum , draga úr streitu og efla orku.
- Öndunaræfingar sem róa hugann og styrkja taugakerfið.
- Einfaldar hugleiðsluæfingar.
- Jóga nidra djúpslökun (20 - 30 mín.).
- Fræðslu um streitu og leiðir til að ná jafnvægi og lifa heilbrigðu lífi.
- Fræðslu um jóga lífsspeki sem nýtist vel í dagsins önn.
Dagsetning: Miðvikudaga og föstudag
Tímasetning: 12:00 - 13:00
Kr. 28.000 fyrir sex vikna námskeið.
Heimilisfang: Skipholt 35, 105 Reykjavík, 2. hæð.