Samflot í Árbæjarlaug
Nánari upplýsingar
Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar býður Árbæjarlaug upp á Samflot með umsjón. Samflot eru hugsuð sem vettvangur fyrir fólk að koma saman og upplifa nærandi slökunarstund saman í þyngdarleysi umvafin vatninu. Samflot eru ókeypis og öllum opin.
Það er engin fyrirfram skráning í Samflot og aðeins er greiddur aðgangur að sundlaug.
Flotbúnaður boðinn til láns. fyrstur kemur, fyrstur fær!
Dagsetning: Fyrsta miðvikudag í mánuði
Tímasetning: 20:30
Greiddur aðgangur að lauginni
Hvar: Árbæjarlaug
Heimilisfang: Fylkisvegur 9, 110 Reykjavík