Heimilisfang: Suðurgata 10, 101 Reykjavík.
Símanúmer: 571-5580
Þarf tilvísun? Nei
Er úrræðið niðurgreitt? Já
Bergið Headspace
0. stigs þjónusta
Geðheilsa, Ofbeldi og áföll
Akureyri, Hafnafjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík
Unglingar, Ungmenni
Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri og er þjónustan óháð greiningum og öðrum skilyrðum.
Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir ungt fólk sem vill fá aðstoð fagfólks og notenda með fjölbreytta reynslu.
Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára. Með fræðslu og stuðningi finnum við leiðir í sameiningu að bættri líðan og eflum virkni ungmenna í samfélaginu. Þjónustan miðar að því að efla þátttöku og þekkingu ungmenna sem og að auka tengsl þeirra við samfélagið.
Umfjöllun í fjölmiðlum







