Heimilisfang: Suðurgata 12-14 og 15-17, Reykjanesbæ
Símanúmer: 420-3270
Þarf tilvísun? Nei
Er úrræðið niðurgreitt? Já
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
0. stigs þjónusta
Endurhæfing, Geðheilsa
Grindavík, Reykjanesbær, Vogar
Fullorðnir
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er grunnendurhæfingarúrræði og athvarf fyrir fólk með geðheilsuvanda.
Markmið Bjargarinnar eru:
- Að rjúfa félagslega einangrun.
- Að efla sjálfstæði einstaklinga.
- Að auka samfélagsþátttöku einstaklinga.
- Að draga úr stofnanainnlögnum.
- Að auka þekkingu almennings á geðheilbrigðismálum.
- Að þjálfa einstaklinga í atvinnutengdri hegðun og endurhæfa þá til náms eða út á vinnumarkað.
Björgin býður upp á margskonar þjónustu og er öllum velkomið að koma og fá ráðgjöf. Ekki þarf tilvísun til þess að sækja þjónustu í Björginni. Björgin býður upp á tvær þjónustuleiðir, athvarf og endurhæfingu, sem henta mismunandi þörfum og aðstæðum.
Umfjöllun í fjölmiðlum
Skipulag og stundaskrár







