Þarf tilvísun?
Tilvísun frá hverjum? Lækni
Er úrræðið niðurgreitt?
Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana
2. stigs þjónusta

Þjónustan er fyrir fólk 18 ára og eldri.

Markhópur teymisins er fólk  með þroskahamlanir og/eða hamlandi einhverfu sem þarfnast sértækrar geðheilbrigðisþjónustu vegna geðræns vanda.

Geðheilsuteymið er fyrir þá sem þurfa meiri og sérhæfðari þjónustu en veitt er á vegum heilsugæslunnar.

Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimavitjunum og viðtölum í húsnæði teymisins. Í teyminu starfa atferlisfræðingur, geðlæknir, heimilislæknir, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sálfræðingur, skrifstofustjóri og þroskaþjálfar.

Teymið sinnir ekki frumgreiningu s.s. vegna gruns um einhverfu eða skyldar raskanir.

Hlutverk og markmið þjónustu geðheilsuteymisins:

  • Að stuðla að og viðhalda bata og færni.
  • Að tryggja einstaklingsmiðaða þjónustu.
  • Að tryggja samfellu og samþættingu í meðferð.
  • Að efla sálrænt og félagslegt heilbrigði einstaklingsins.
  • Að hvetja til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar.
  • Að styðja einstaklinginn í að lifa innihaldsríku lífi.
  • Að veita stuðning og ráðgjöf til aðstandenda og starfsfólks stoðþjónustu sveitarfélaga.

Geðteymi taugaþroskaraskana sinnir einstaklingum 18 ára og eldri með alvarlegar og/eða óvenjulegar taugaþroskaraskanir, einkum þroskahömlun. Margir eru einnig með einhverfu og annan samþættan heilsufarsvanda tengdan fötlun, til dæmis flogaveiki, CP eða hreyfihömlun. Auk þess þarf að vera til staðar geðrænn vandi og/eða krefjandi hegðun. Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimavitjunum og viðtölum. Markmiðið er að styðja bata, færni, sjálfshjálp, sjálfsvirðingu og innihaldsríkt líf.

Tengd úrræði

Ylfa ráðgjöf
Ylfa - nærþjónusta og ráðgjöf
Grófin geðrækt Hafnarstræti 95 Akureyri
Grófin geðrækt
Okkar heimur
Okkar heimur
Björgin geðræktarmiðstöð
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Klúbburinn Geysir
Klúbburinn Geysir
Húsnæði Hugarafls
Hugarafl
Scroll to Top