Heimilisfang: Skipholti 29, 105 Reykjavík
Þarf tilvísun? Nei
Er úrræðið niðurgreitt?
Klúbburinn Geysir
0. stigs þjónusta

Klúbburinn Geysir býður velkomna þá sem eiga eða hafa átt við geðræn veikindi að stríða, til að vinna uppbyggilegt starf á jafningjagrundvelli með það að markmiði að auka samfélagslega þátttöku og efla lífsgæði.

Það er gert með því að:

  • Vera öruggur samastaður
  • Hafa fjölbreytt verkefni á vinnumiðuðum degi
  • Efla sjálfstraust með því að taka tillit til styrkleika, áhuga og getu hvers og eins hverju sinni
  • Veita stuðning í námi og atvinnuleit
  • Bjóða tímabundin atvinnutækifæri

Félagar og starfsfólk klúbbsins ber sameiginlega ábyrgð á rekstrinum.

Klúbburinn byggir starfsemi sína á skipulögðum vinnudegi. Öll starfsemin er eingöngu í þágu klúbbsins og félaga hans. Félagar og starfsfólk skipta með sér verkum og ákveða í sameiningu hvaða störf þarf að inna af hendi.

Störf innan hússins eru unninn í eftirfarandi deildum: Eldhús- og viðhaldsdeild, skrifstofu og atvinnu-og menntadeild. Öll vinna félaga innan klúbbsins er unnin í sjálfboðavinnu.

Deildarfundir
Deildarfundir eru haldnir í hverri deild tvisvar á dag, kl. 09.15 og 13.15. Á deildarfundum er farið yfir stöðu verkefna og félagar velja sér störf sem liggja fyrir og þeir hafa áhuga á að inna af hendi.

Klúbburinn býður m.a. upp á:

  • atvinnutækifæri
  • ráðningu til reynslu
  • atvinnu með stuðningi og sjálfstæða ráðningu

Klúbburinn Geysir er félags- og virkniúrræði fyrir fullorðið fólk sem hefur glímt við geðrænar áskoranir. Þetta er ekki hefðbundin meðferð heldur öruggur staður þar sem fólk hittir aðra, tekur þátt í gagnlegum verkefnum og fær félagslegan stuðning. Markmiðið er að efla sjálfstraust, styrkja daglega rútínu og auka þátttöku í samfélaginu. Lögð er áhersla á virðingu, styrkleika hvers og eins og að fólk taki þátt á sínum eigin forsendum. Klúbburinn veitir líka stuðning við nám, atvinnuleit og tímabundin störf fyrir þau sem vilja komast aftur út á vinnumarkaðinn.

Tengd úrræði

Rafstöðvarvegur 7-9
Hitt húsið - miðstöð ungs fólks
Grófin geðrækt Hafnarstræti 95 Akureyri
Grófin geðrækt
Endurhæfingarhúsið Hver Suðurgata 57
Endurhæfingarhúsið HVER
Okkar heimur
Okkar heimur
Virk Borgartún 18
Virk starfsendurhæfingarsjóður
Björgin geðræktarmiðstöð
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Scroll to Top