Heimilisfang: Dalbraut 4, 300 Akranesi
Þarf tilvísun? Nei
Er úrræðið niðurgreitt? Já
Félagsstarf Akraneskaupstaðar
0. stigs þjónusta
Handverk, Samvera, Virkni
Akranes
Eldri borgarar, Fullorðnir
Félagsstarfið er fyrri aldraða og öryrkja.
Akraneskaupstaður stendur fyrir félagsstarfi fyrir aldraða og öryrkja. Almenn handavinna er í boði svosem leir og gler. Einnig mósaík, skartgripagerð og fleira sem er auglýst sérstaklega. Á fésbókarsíðu félagsstarfsins er starfið kynnt reglulega.
Starfinu er ætlað að fyrirbyggja félagslega einangrun og koma til móts við áhugasvið, færni og þekkingu þátttakenda á hverjum tíma í ýmis konar listsköpun og verkefnum sem oft eru árstíðabundin. Félagsstarf aldraða hefur það markmið að stuðla að samskiptum og veita félagsskap.







