Heimilisfang: Litlahlíð 7A, Mosfellsbær
Þarf tilvísun? Nei
Karlar í skúrum Mosfellsbæ
0. stigs þjónusta

Karlar í skúrum er fyrir þá sem vilja vera í félagsskap og hitta aðra, nýta hæfileika sína og leiðbeina öðrum við ýmis viðfangsefni og verkefni.

Markmið verkefnisins var að skapa aðstæður þar sem heilsa og vellíðan karlmanna er í fyrirrúmi, þar sem þeir halda sér við líkamlega, andlega og félagslega. Markmiðið er að auka lífsgæðin gegnum handverk, tómstundir og ekki síst samveru.

Starfsemi Karla í skúrum snýst um að veita körlum athvarf og aðstöðu til að sinna hugðarefnum sínum, rjúfa einangrun þeirra og efla félagsleg tengsl.

Karlar í skúrum í Mosfellsbæ er samfélagslegt virkni- og félagsúrræði fyrir karla 18 ára og eldri. Starfið byggist á félagsskap, handverki og skapandi verkefnum í notalegu og vinalegu umhverfi. Þar geta karlar hist, unnið saman að smíðum eða öðrum verkefnum, drukkið kaffi og spjallað. Markmiðið er meðal annars að draga úr einangrun og efla félagsleg tengsl og þátttöku.

Félagsgjald er 3.000 krónur á mánuði.

Tengd úrræði

photorealistic mynd fyrir vefsíðu sem endurspeglar félagsstarf fyrir eldri borgara
Félagsstarf Akraneskaupstaðar
Dalhraun 3, Vestmannaeyjum
Karlar í skúrum Vestmannaeyjum
Helluhraun 8
Karlar í skúrum Hafnarfirði
Arnarbakki 2
Karlar í skúrum Reykjavík
Endurhæfingarhúsið Hver Suðurgata 57
Endurhæfingarhúsið HVER
Noztra
Noztra
Scroll to Top