Bæta við úrræði
Bæta við fagaðila
Bæta við samtökum
Bæta við æfingum
Bæta við slökun
Bæta við fræðsluefni
Bæta við vefsíðu
Bæta við smáforriti
Bæta við hlaðvarpi
Bæta við hlaðvarpsþætti
Bæta við bók
Bæta við tímariti
Home » Hópar » Breiðu bökin – Vatnsleikfimi Hörpu Helga
Breiðu bökin - Vatnsleikfimi Hörpu Helga
Hvar: Grensáslaug
Heimilisfang: Grensásvegi 62, 108 Reykjavík.
Netfang: bakleikfimi@bakleikfimi.com
Dagsetning: Mánudaga og miðvikudaga
Tímasetning: kl. 11.30, 12:15, 16.10, 17:00 og 17:50
Kostnaður:

Greitt er ýmist fyrir hálfa eða heila önn. Heil önn eru 18 vikur (36 skipti) og hálf önn  eru 9 vikur (18 skipti).

Fyrir nánari upplýsingar um verð, sendið á bakleikfimi@bakleikfimi.com

Í hnotskurn
Nánari upplýsingar

Tímarnir eru tvisvar í viku í 45 mínútur í senn. Í æfingunum er vatnsyfirborðið í axlarhæð og er hitastig laugar 33°C. 

Áhersla er lögð á að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund. Styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, liðkandi æfingar og teygjur eru gerðar í hverjum tíma auk æfinga sem bæta samhæfingu og stöðugleika.

Þátttakendur fá fræðslu og heimaæfingar í hverri viku. Í lauginni eru tveir heitir pottar með vatnsnuddi.

Tímarnir eru mánudaga og miðvikudaga:

Kl. 11.30 og 16.10.

  • Léttar liðkandi og styrkjandi æfingar sem bæta líðan í hálsi og baki.
  • Æfingar fyrir þá sem hafa einkenni frá hálsi og baki, gigt og sjúkdóma þar sem forðast þarf ofálag.

Kl. 12.15 og 17.00.

  • Fjölbreyttar æfingar þar sem áhersla er lögð á styrk, úthald og liðleika.
  • Hver og einn stjórnar álaginu og getur valið að auka vatnsmótstöðuna með áhöldum. 

Kl. 17.50.

  • Þrek og  þol. Skemmtileg og kröftug vatnsleikfimi með fjölbreyttum æfingum.
Scroll to Top