Gleym mér ei styrktarfélag
0. stigs þjónusta

Markhópur

Gleym mér ei er styrktarfélag sem er fyrir þá sem missa á meðgöngu og i/eftir fæðingu.

Markmið

Tilgangur félagsins er að styrkja málefni tengt missi barna svo að lítil ljós fái að lifa áfram í minningunni.
Markmiðið er að styðja betur við foreldra sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu.

Nánari upplýsingar

Gleym mér ei styður við einstaklinga og foreldra sem missa börn á meðgöngu og í/eftir fæðingu með því að bjóða upp á ráðgjafasamtal, jafningjafræðslu, stuðningshópa, samverustundir og fræðslu. Einnig heldur félagið úti ýmsum stuðningshópum á facebook.

Ráðgjafasamtal

  • Gleym mér ei býður upp á samtal fyrir foreldra sem misst hafa barn á meðgöngu, eftir fæðingu eða á fyrstu dögum/vikum eftir fæðingu barns.
  • Samtalið er ætlað að gefa upplýsingar um þann stuðning og þjónustu sem í boði er, en getur líka verið tækifæri til að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu.
  • Samtölin fara fram í Sorgarmiðstöð (Lífsgæðasetur, Hafnarfirði) eða í gegnum síma/fjarfundabúnað. Hægt er að óska eftir samtali með því að senda póst á gme@gme.is.

Stuðningshópastarf: Missir viku 22 eða meira

Landspítali Háskólasjúkrahús býður foreldrum/einstaklingum, sem misst hafa barn eftir 22 vikna meðgöngu, í stuðningshópastarf. Iðulega eru tveir hópar skipulagðir, einn að vori og annar að hausti. Athugið að gott er að láta sex mánuði líða frá missinum áður en þú kemur í hópastarf. Nánari upplýsingar og skráning á bjarneyh@landspitali.is
Stuðningshóparstarf: Missir á viku 12 til 21
Gleym mér ei, í samstarfi við Sorgarmiðstöð, hefur boðið upp á stuðningshópastarf fyrir foreldra og einstaklinga sem missa á viku 12-21, en aðeins er farið af stað með hópinn ef hann er fullskipaður. Ef þú hefur áhuga á stuðningshópastarfi árið 2024, sendu umsókn hér. Haft verður samband ef full þátttaka fæst.
  • Æskilegt er að um sex mánuðir séu liðnir frá missi þegar stuðningshópurinn fer af stað.
  • Stuðningshópastarfið er iðulega í sex skipti og staðfestingargjald er 3.000 kr.
  • Ef báðir foreldrar ætla að mæta verða þeir báðir að skrá sig.
  • Staðfestingargjald á að greiða eftir að hópstjórar hafa staðfest skráningu með samtali.
  • Nánari upplýsingar hjá gme@gme.is

Jafningjastuðningur

Það getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu, einhvern sem hefur þann skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálf/ur.
Hægt er að óska eftir jafningjastuðningi á vef Sorgarmiðstöðvar.

Reynt er eftir bestu getu að para saman jafningja með svipaða reynslu. Misjafnt er hvernig stuðningurinn fer fram. Sumir ræða saman í síma á meðan aðrir hittast á kaffihúsi eða fara í göngutúr. Oftast er hist í 3-6 skipti, en báðir aðilar mega draga sig út úr því hvenær sem er.

Þau sem veita jafningjastuðning á vegum Gleym mér ei og Sorgarmiðstöðvar hafa misst barn á meðgöngu, í fæðingu eða á fyrstu dögum/vikum eftir fæðingu barns. Þau hafa sótt námskeið um jafningjastuðning og setið erindi um sorg og sorgarviðbrögð, og vinna eftir siðareglum Sorgarmiðstöðvar og skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu.

Facebook hópar (sjá nánar á heimasíðu styrktarfélagsins)

  • Regnbogar: meðganga / uppeldi eftir missi
  • Stuðningshópur Fósturlát
  • Stuðningshópur
  • Stuðningshópur - Missir fyrir áratugum
  • Stuðningshópur - Meðganga enduð vegna fósturgalla eða veikinda
  • Stuðningshópur - Feður

Bæklingar um meðgöngumissi

Tengd úrræði

Engin tengd úrræði fundust.
Scroll to Top