Heimilisfang: Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Símanúmer: 510 9380
Þarf tilvísun?
Tilvísun frá hverjum? Heilsugæslu, Velferðarþjónustu sveitafélaga, VIRK, Vinnumálastofnun, Öðrum sérfræðingum
Er úrræðið niðurgreitt?
Hringsjá
2. stigs þjónusta

Hringsjá er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa, veikinda, félagslegra erfiðleika eða annarra áfalla og vilja hefja nám að nýju.

Markmið Hringsjár er að veita náms- og starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám og/eða að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði.

Hringsjá er náms- og starfsendurhæfingarúrræði fyrir fólk 18 ára og eldra sem hefur verið frá vinnu eða námi vegna veikinda, slysa, fötlunar, félagslegra erfiðleika eða annarra áfalla. Markmiðið er að hjálpa fólki að byggja sig upp á ný og verða betur í stakk búið til að fara aftur í nám eða út á vinnumarkað. Endurhæfingin byggir á einstaklingsmiðuðu námi, ráðgjöf og stuðningi, annaðhvort í formi styttri námskeiða eða einingabærs náms. Áhersla er meðal annars á að efla sjálfstraust, félagsfærni, raunhæft sjálfsmat, þátttöku í samfélaginu og undirbúning fyrir störf eða áframhaldandi nám. Úrræðið hentar líka fólki með litla grunnmenntun eða sértæka námserfiðleika.

Það sem einkennir Hringsjá er að námið og stuðningurinn fara saman. Samhliða kennslu getur fólk nýtt sér stoðþjónustu eins og félagsráðgjöf, iðjuþjálfun, náms- og starfsráðgjöf, sálfræðiþjónustu og sérkennslu vegna lesblindu eða annarra námsörðugleika. Þetta gerir Hringsjá að úrræði sem hentar fólki sem þarf ekki bara nám heldur líka utanumhald, leiðsögn og stuðning til að ná fótfestu aftur.

Tengd úrræði

Virk Borgartún 18
Virk starfsendurhæfingarsjóður
Klúbburinn Geysir
Klúbburinn Geysir
Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun - ráðgjöf og stuðningur við atvinnuleit
Plastiðjan Bjarg iðjulundur
Plastiðjan Bjarg Iðjulundur
Scroll to Top