Allir þeir sem eru 16 ára og eldri geta nýtt endurhæfingartilboðin strax við greiningu, óháð búsetu. Aðstandendur eru einnig velkomnir og er boðið upp á sérhæfð úrræði fyrir aðstandendur frá 5 ára og upp úr.
Þegar fólk gengur í gegnum ferli krabbameinsmeðferðar þá minnkar orkan og oft dregur úr frumkvæði. Sumir hætta að vinna tímabundið og aðrir alfarið vegna afleiðinga veikindanna. Ljósið hefur það að markmiði að efla lífsgæði hins krabbameinsgreinda og aðstandenda meðan á þessu ferli stendur.
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein. Markmiðið er að styðja fólk líkamlega, andlega og félagslega í kjölfar greiningar og meðan á meðferð og bata stendur. Þar er boðin heildræn þjónusta, til dæmis viðtöl við fagfólk, líkamleg endurhæfing, fræðsla, námskeið, jafningjahópar og önnur úrræði sem hjálpa fólki að byggja sig upp og halda virkni. Aðstandendur geta líka fengið stuðning.




