Heimilisfang: Bolholt 6, 2. hæð, 105 Reykjavík
Símanúmer: 888 8440
Þarf tilvísun? Nei
Múltíkúlti - Málamiðstöð
0. stigs þjónusta
Innflytjendur
Reykjavík
Allur aldurshópur
Einstaklinga með annað móðurmál en íslensku
Múltikúlti er viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti. Meðlimir stéttafélaga geta sótt um allt að 75% endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá stéttarfélaginu sínu.
Múltíkúlti – Málamiðstöð er tungumála- og fræðslumiðstöð fyrir fólk með annað móðurmál en íslensku. Þar er meðal annars boðið upp á íslenskunámskeið á mismunandi getustigum, önnur tungumálanámskeið og sveigjanlegt nám bæði á staðnum og í fjarkennslu. Úrræðið getur nýst fólki sem vill styrkja tungumálafærni sína, auka möguleika sína í daglegu lífi, námi og vinnu og tengjast samfélaginu betur.

