Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum.
Þátttaka í starfsemi Hugarafls er fyrir öll, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Starfsemin er algjörlega gjaldfrjáls, óháð búsetu og engin krafa er gerð um tilvísanir né geðsjúkdómagreiningar.
Starfsemi Hugarafls er mótuð bæði af einstaklingum með persónulega reynslu af andlegum áskorunum (stundum kallað notendur) og einstaklingum með fagmenntun.
Við leggjum okkur fram um að skapa umhverfi sem ýtir undir valdeflingu og bata einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum og fjölskyldur þeirra. Sérstaða Hugarafls er einstaklingsmiðuð nálgun sem og samvinna fólks sem tekist hefur á við andlegar áskoranir og fagfólks. Við vinnum saman sem jafningjar, tökum sameiginlegar ákvarðanir um starfsemi Hugarafls og erum hvött til að láta í ljós skoðanir okkar. Við berum sameiginlega ábyrgð á hópastarfi, verkefnum og dagskrá Hugarafls.
Allt starf Hugarafls byggist á hugmyndafræði valdeflingar sem mótuð var af Judi Chamberlin sem og batahugmyndafræði Daniels Fishers. Þetta er ekki einungis leiðarljós starfseminnar heldur nýtast fræðin sem grundvöllur í daglegu starfi Hugarafls og sjálfsvinnu einstaklinga. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er á forsendum hvers og eins. Við virðum sjálfræði hvers og eins til að móta sína bataleið.
Hugarafl er notendastýrt félag og samfélag jafningja fyrir fólk sem hefur upplifað andlegar áskoranir og vill vinna í bata sínum á eigin forsendum. Áherslan er á sjálfseflingu, geðheilsu, von, virðingu og stuðning á jafningjagrunni. Hugarafl er vettvangur þar sem fólk getur fengið stuðning, tekið þátt í hópastarfi, fræðslu og samfélagi með öðrum sem hafa svipaða reynslu.
Í Hugarafli móta notendur sjálfir starfsemina og eigin bataferli í samstarfi við fagfólk og aðra notendur. Þar er meðal annars boðið upp á nýliðaferli, fundi, fræðslu, hópastarf og stuðning fyrir aðstandendur. Starfsemin er fjölbreytt og felur m.a. í sér fundi, hugleiðslu og aðra uppbyggilega viðveru, bæði á staðnum og á netinu







