Hreyfiseðill er fyrir þá einstaklinga sem eru að glíma við sjúkdóma þar sem hreyfing ætti að vera hluti af meðferð svo sem:
- Offita
- Sykursýki 2
- Þunglyndi, kvíði og depurð
- Hækkaður blóðþrýstingur
- Langvinnir verkir
- Hjarta- og lungnasjúkdómar
- Hækkuð blóðfita
- Beinþynning
Hreyfiseðillinn er meðferðarúrræði fyrir fólk með sjúkdóma eða einkenni sem geta batnað með reglulegri hreyfingu. Ef heilbrigðisstarfsmaður telur að hreyfing eigi að vera hluti af meðferðinni getur hann boðið þér hreyfiseðil. Þá er þér vísað til hreyfistjóra sem er sjúkraþjálfari á heilsugæslunni þinni. Þar fer fram eitt viðtal. Í því er farið yfir möguleika þína og getu til hreyfingar. Einnig er gert sex mínútna göngupróf og útskýrt hvernig þú skráir hreyfingu þína. Síðan eru sett markmið og gerð hreyfiáætlun. Hún er yfirleitt gerð til þriggja eða sex mánaða og tekur mið af áhuga þínum, getu og því magni og ákefð hreyfingar sem hentar þér.
Þú skráir hreyfingu þína rafrænt og getur þannig fylgst með hvernig þér gengur. Hreyfistjórinn fylgist líka með framvindu þinni. Hann veitir aðhald og hvatningu með símtölum og tölvupóstum. Við lok meðferðar tekur hann saman greinargerð sem aðrir meðferðaraðilar geta notað til að meta árangurinn. Hver ávísun á hreyfiseðil getur gilt í allt að eitt ár.







