Diabetes Ísland
0. stigs þjónusta

Markhópur

Diabetes eru samtök fyrir sykursjúka og aðstandendur þeirra.

Markmið

Aðalstarf félagsins felst annars vegar í fræðslu til sykursjúkra og almennings. Meginverkefni félagsins eru:

  • Að ljá fólki með sykursýki rödd í almennri umræðu og að tala máli þeirra við yfirvöld.
  • Að gefa út fræðsluefni um sykursýki og fylgikvilla hennar, bæði fyrir sjúklingana sjálfa og fyrir allan almenning.
  • Að skipuleggja fjölbreytt félagsstarf fyrir félagsmenn sína.
  • Vinna að því að styrkja heilsugæslu, forvarnir og að styðja við starfsemi Innkirtladeildar á Landspítala.

Nánari upplýsingar

Diabetes Ísland – félag fólks með sykursýki eru landssamtök en einnig eru starfandi samtök foreldra sykursjúkra barna, Dropinn, sem er með vefsíðu á slóðinni https://dropinn.is

Tengd úrræði

HSN
Heilsueflandi móttaka/þjónusta
þönglabakki 1
Heilsubrú Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins
Scroll to Top