Þjónustan er fyrir einstaklinga með með lífsstílssjúkdóma, andlega vanlíðan, kvennheilsuvanda, offitu og sykursýki 2
Heilsubrú er miðlæg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem á að styðja við og bæta við þá þjónustu sem er veitt á heilsugæslustöðvum. Úrræðið er ætlað fólki sem glímir meðal annars við lífsstílstengdan vanda, andlega vanlíðan, kvenheilsuvanda, offitu og sykursýki 2. Þar er meðal annars boðið upp á hópfræðslu, námskeið, ráðgjöf og í sumum tilvikum meðferð eða einstaklingsviðtöl. Heilsubrú sinnir líka ákveðinni sérhæfðri þjónustu, til dæmis á sviði kvenheilsu, hugrænnar atferlismeðferðar, sykursýki, næringarráðgjafar og sérhæfðrar meðgönguverndar. Á sumum sviðum er þjónustan í hópum, en annars staðar getur hún verið í staðviðtölum eða fjarviðtölum. Fjölbreyttir hóptímar og námskeið eru í boði og fólk velur sjálft sína fræðslu.





