Þeir sem eru í meðferð eða á biðlista hjá DAM teymi geta haft samband með því að senda fyrirspurn í gegnum Heilsuveru.
Meginverkefni teymisins er að sinna einstaklingum með alvarlegan tilfinningavanda.
Í DAM meðferð er lögð áhersla á aukna meðvitund um hugsanir og tilfinningar (núvitund) og færni í tilfinningastjórn, samskiptum og streituþoli. Heildarmarkmið meðferðar er að stuðla að bættri samskiptafærni, tilfinningaviðbrögðum, hugsunum og hegðun í tengslum við vandamál í daglegu lífi.
DAM-teymið er þverfaglegt teymi sem veitir díalektíska atferlismeðferð (DAM) fyrir einstaklinga með alvarlegan tilfinningavanda. Meðferðin byggir á gagnreyndri meðferð Marsha Linehan og felur í sér aukna meðvitund um hugsanir og tilfinningar (núvitund), tilfinningastjórn, samskiptafærni og streituþol.







