Heimilisfang: Sunnuhlíð 12, 600 Akureyri
Símanúmer: 432 4600
Ath!!

Vinsamlegast bókið tíma í síma 432 4600, alla virka daga frá kl. 8:10-15:50.

Móttaka ungs fólks
1. stigs þjónusta

Í móttöku ungs fólks er reynt er að sinna þörfum þeirra sem eiga við tilfinningaleg vandamál að stríða, kvíða, depurð, áfengis- og vímuefnavandamál, einelti, kynsjúkdóma eða vilja ræða getnaðarvarnir og kynlífsvandamál.

Móttakan er ætluð til að mæta þörfum þeirra sem ekki hafa talið sig geta nýtt þjónustu heilsugæslustöðvarinnar með hefðbundnum hætti vegna opnunartíma og fyrirhafnar við að panta tíma.

Markmið með móttöku ungs fólks er að vinna að bættum lífsgæðum og aðstæðum unglinga og ungs fólks með því að:

  • hvetja með fræðslu til bættrar sjálfsmyndar, sjálfsöryggis og stuðla að jákvæðu félagsumhverfi unglinga,
  • draga úr ótímabærum þungunum ungra kvenna með því að gera getnaðarvarnir aðgengilegri ásamt fræðslu um siðfræði kynlífs og barneigna,
  • draga úr afleiðingum kynsjúkdóma s.s. ófrjósemi,
  • bæta geðheilbrigði með aukinni þjónustu til þeirra sem eiga við tilfinningaleg vandamál að stríða, kvíða, depurð og einelti,
  • draga úr veipi, reykingum og áfengis-og vímuefnaneyslu ungs fólks
  • ungt fólk og unglingar þekki og nýti sér aðgengi heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Móttaka ungs fólks er þjónusta fyrir unglinga og ungt fólk sem vill fá aðstoð eða ráðgjöf vegna andlegrar vanlíðanar eða annarra viðkvæmra mála. Þar er meðal annars unnið með kvíða, depurð, tilfinningalegan vanda, einelti, áfengis- og vímuefnavanda, kynsjúkdóma og spurningar um getnaðarvarnir og kynlíf. Markmiðið er að gera þjónustuna aðgengilegri fyrir ungt fólk og mæta þeim sem hafa ekki treyst sér eða haft tök á að nýta hefðbundna þjónustu heilsugæslunnar.

Tengd úrræði

Suðurlandsbraut 4
Kvíðameðferðarstöðin
Grófin geðrækt Hafnarstræti 95 Akureyri
Grófin geðrækt
Okkar heimur
Okkar heimur
Björgin geðræktarmiðstöð
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Klúbburinn Geysir
Klúbburinn Geysir
Húsnæði Hugarafls
Hugarafl
Scroll to Top