Er úrræðið niðurgreitt?
Hitt húsið - miðstöð ungs fólks

Hitt Húsið er miðstöð ungs fólks á aldrinum 16-25 ára á sviði menningar og lista, tómstunda, upplýsinga og ráðgjafar, atvinnumála og forvarna.

  • Veita ungu fólki aðstöðu og aðstoð við að koma hugmyndum sínum í framkvæmd
  • Endurspegla menningu ungs fólks
  • Veita upplýsingar og ráðgjöf
  • Styrkja stöðu ungs fólks á vinnumarkaði
  • Vera vettvangur fyrir félagsleg úrræði

Í Hinu Húsinu getur ungt fólk nýtt sér aðstöðuna til að syngja, dansa, dreyma, skapa, læra, spila, funda og fleira. Ýmis félög og samtök ungs fólks hafa aðstöðu í Hinu Húsinu.

Atvinnuráðgjöf: Atvinnuráðgjafar Hins Hússins sérhæfa sig að hjálpa ungu fólki í atvinnuleit og styrkja stöðu þess á vinnumarkaði. Jafningjafræðarar ræða og fræða annað ungt fólk um lífið og tilveruna og boðið er upp á hópastarf fyrir ungt fólk sem vill kynnast öðru ungu fólki.
  - Panta tíma í atvinnuráðgjöf 

Vinfús: Hitt Húsið heldur úti hópastarfi fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára. Starfið er hugsað fyrir öll ungmenni sem vilja kynnast öðrum ungmennum og einnig þá sem hafa einangrast í skóla eða í öðrum félagslegum aðstæðum. Starfið gengur út á að skapa heilbrigðan grundvöll fyrir afþreyingu og skemmtanir.
    - Sækja um Vinfús

Jafningjafræðsla: Jafningjafræðslan er skipuð ungu fólki á aldrinum 16-20 ára sem fer og ræðir við annað ungt fólk um málefni sem snúa að ungu fólki svo sem sjálfsmynd, kynlíf, geðheilbrigði, vímuefni og fleira. Hugmyndafræðin er sú að ungt fólk nái á annan hátt til annars ungs fólks heldur en aðrir.
  - Meira um jafningjafræðsluna á facebook

Frítímastarf fatlaðra: Í Hinu Húsinu er boðið upp á frítímastarf fyrir ungmenni með fötlun sem stunda nám á starfsbrautum framhaldsskólanna. Einu sinni í viku er einnig opið kvöldstarf fyrir aldurshópinn 16-30 ára. Hitt Húsið á aðild að hátíðinni List án landamæra.
  - Skrá í frístundastarf fatlaðra

Kvöldstarf: Á fimmtudagskvöldum frá kl. 17.00 – 21.00 er opið kvöldstarf fyrir aldurshópinn 16 – 30 ára.  Fjölbreytt dagskrá er í boði hverju sinni sem er skipulögð af ungmennum og starfsmönnum.

Leiga á aðstöðu: Ungt fólk á aldrinum 16-25 ára getur nýtt sér aðstöðu Hins hússins fyrir eigin hugmyndir og verkefni.

Upplýsingamiðstöð: Í Upplýsingamiðstöð Hins Hússins getur hver sem er á aldrinum 16–25 ára komið og fengið aðstoð starfsfólks við að koma hugmynd sinni í framkvæmd og nýtt sér fjölbreytta aðstöðu Hins Hússins.

Til dæmi ser hægt að:

  • Taka upp og spila tónlist í fullbúnu hljóðveri
  • Klippa og vinna video í videoklippi aðstöðu
  • Halda fundi, ráðstefnur og tónleika
  • Æfa dans eða leikverk svo að eitthvað sé nefnt

Fullbúið hljóðkerfi, fjarfundabúnaður og stórir skjáir eru meðal annarra tóla og tækja á staðnum. Svo er líka hægt að koma og að fara í borðtennis, pool, spila playstation eða spila borðspil.

Umfjöllun í fjölmiðlum

Tengd úrræði

photorealistic mynd fyrir vefsíðu sem endurspeglar félagsstarf fyrir eldri borgara
Félagsstarf Akraneskaupstaðar
Okkar heimur
Okkar heimur
photorealistic mynd fyrir vefsíðu sem endurspeglar létta hreyfingu úti í náttúrunni. Myndin er af einni manneskju í göngu sem lætur henni líða vel. Manneskjan er norræn í útliti
Hreyfiseðill
Klúbburinn Geysir
Klúbburinn Geysir
úrræði_hlutverkasetur
Hlutverkasetur
Scroll to Top