Þarf tilvísun? Nei
Er úrræðið niðurgreitt?
Samfélagshúsið Vitatorgi

Fyrir Reykvíkinga á öllum aldri.

Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins.

Vitatorg er samfélagshús á vegum Reykjavíkurborgar og eru samfélagshúsin þrjú; á Vitatorgi, Aflagranda 40 og Bólastaðahlíð 43.

Hver stöð býður upp á sína eigin dagskrá sem samanstendur af ýmsum spennandi hlutum. Sem dæmi má nefna: vinnustofur, hagleikssmiðjur, listasmiðjur og klúbbastarf ýmiskonar, spilamennsku, skoðunarferðir, dans og leikfimi. Síðan eru ýmsir viðburðir árlegir og/eða tilfallandi, svo sem grillveisla, haustfagnaður og þorrablót.

Lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf og hver og einn getur haft áhrif á þróun þess.

Tengd úrræði

photorealistic mynd fyrir vefsíðu sem endurspeglar félagsstarf fyrir eldri borgara
Félagsstarf Akraneskaupstaðar
Dalhraun 3, Vestmannaeyjum
Karlar í skúrum Vestmannaeyjum
Helluhraun 8
Karlar í skúrum Hafnarfirði
Litlahlíð
Karlar í skúrum Mosfellsbæ
Arnarbakki 2
Karlar í skúrum Reykjavík
Endurhæfingarhúsið Hver Suðurgata 57
Endurhæfingarhúsið HVER
Scroll to Top