Bæta við úrræði
Bæta við fagaðila
Bæta við samtökum
Bæta við æfingum
Bæta við slökun
Bæta við fræðsluefni
Bæta við vefsíðu
Bæta við smáforriti
Bæta við hlaðvarpi
Bæta við hlaðvarpsþætti
Bæta við bók
Bæta við tímariti

Afstaða

Í hnotskurn

Efnisflokkur: Afplánun
Staðsetning: Allt landið
Aldursflokkur: Allur aldurshópur

Þjónusta

Fjármálaráðgjöf ♥ Hagsmunagæsla ♥ Jafningjastuðningur ♥ Lögfræðiráðgjöf ♥ Ráðgjöf ♥ Stuðningshópar fyrir aðstandendur ♥ Stuðningur ♥ Vettvangsteymi

Hvert er markmiðið?

AFSTAÐA er hagsmunasamtök á landsvísu. Innan Afstöðu er sérfræðiþekking á fangelsismálum. Markmið Afstöðu er að bæta lífsgæði allra dómþola og ástvina þeirra.

Markmið félagsins eru fyrst og fremst þau að vinna að tækifæri fyrir fanga til ábyrgðar, endurreisnar og að búa þeim skilyrði til farsællar endurkomu út í samfélag manna. Hugað er í hvívetna að aðstandendum fanga, fjölskyldum, vinum og öllum öðrum sem sitja í fangelsi úti í hinu frjálsa samfélagi vegna tengsla við fanga. AFSTAÐA hvetur alla fanga til góðra og göfugra verka, með að markmiði að viðhalda von þeirra og sýnilegum markmiðum á meðan fangavist varir og að henni er lokinni. Félagið mun, eftir því sem kostur er, standa að fræðslu á meðal fanga jafnt sem frjálsra manna og veita aðstoð öllum þeim sem hennar óska eftir því sem kostur er og tækifæri til. Ætlunin er að fræða og upplýsa um fangelsi, orsakir fangavistar og afleiðingar hennar út frá hinum ýmsu sjónarhornum.

Nánari upplýsingar

Ráðgjöf og vitjanir

  • Sjálfboðaliðar jafningja og fagfólks sem heimsækja fangelsi landsins.
  • Netfang: teymi@afstada.is

 

Aðstoð

  • Lögfræðiaðstoð
  • Fjármálaaðstoð,
  • Ráðgjöf og stuðningur fyrir aðstandendur & dómþola
  • Netfang: afstada@afstada.is
Ertu með ábendingar um þetta úrræði sem þú vilt koma á framfæri?
Hafa samband vegna úrræðis

Tengd úrræði