Þarf tilvísun? Nei
Er úrræðið niðurgreitt?
Hugarafl

Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum.

Þátttaka í starfsemi Hugarafls er fyrir öll, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Starfsemin er algjörlega gjaldfrjáls, óháð búsetu og engin krafa er gerð um tilvísanir né geðsjúkdómagreiningar.

Starfsemi Hugarafls er mótuð bæði af einstaklingum með persónulega reynslu af andlegum áskorunum (stundum kallað notendur) og einstaklingum með fagmenntun.

Við leggjum okkur fram um að skapa umhverfi sem ýtir undir valdeflingu og bata einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum og fjölskyldur þeirra. Sérstaða Hugarafls er einstaklingsmiðuð nálgun sem og samvinna fólks sem tekist hefur á við andlegar áskoranir og fagfólks. Við vinnum saman sem jafningjar, tökum sameiginlegar ákvarðanir um starfsemi Hugarafls og erum hvött til að láta í ljós skoðanir okkar. Við berum sameiginlega ábyrgð á hópastarfi, verkefnum og dagskrá Hugarafls.

Allt starf Hugarafls byggist á hugmyndafræði valdeflingar sem mótuð var af Judi Chamberlin sem og batahugmyndafræði Daniels Fishers. Þetta er ekki einungis leiðarljós starfseminnar heldur nýtast fræðin sem grundvöllur í daglegu starfi Hugarafls og sjálfsvinnu einstaklinga. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er á forsendum hvers og eins. Við virðum sjálfræði hvers og eins til að móta sína bataleið.

Í hugarafli er veittur einstaklingsbundinn stuðningur við að ná bata og stjórn á eigin lífi. Sérstaða hugarafls er persónuleg nálgun, samstarf fagfólks og notenda geðheilbrigðisþjónustunnar á jafningjagrunni.

Þjónustan er gjaldfrjáls.

Tengd úrræði

Urðarhvarf 14
Heilaheilsa
Grófin geðrækt Hafnarstræti 95 Akureyri
Grófin geðrækt
Endurhæfingarhúsið Hver Suðurgata 57
Endurhæfingarhúsið HVER
Okkar heimur
Okkar heimur
photorealistic mynd fyrir vefsíðu sem endurspeglar létta hreyfingu úti í náttúrunni. Myndin er af einni manneskju í göngu sem lætur henni líða vel. Manneskjan er norræn í útliti
Hreyfiseðill
Björgin geðræktarmiðstöð
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Scroll to Top