Þarf tilvísun? Nei
Er úrræðið niðurgreitt?
Okkar heimur

Okkar heimur er stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda

-Það getur verið erfitt að eiga foreldri með geðrænan vanda* og það er eðlilegt að upplifa allskonar tilfinningar vegna þess.

Sumir segja að það sé eins og að vera í tilfinningarússíbana.

Það getur verið erfitt fyrir þig að skilja af hverju foreldri þitt hegðar sér eins og það gerir og kannski veistu ekki hvað þú getur gert til að hjálpa til. Þú gætir fundið fyrir kvíða, skömm eða hræðslu og allskonar öðrum tilfinningum.

Vefsíðunni er ætlað að:

- Veita fræðslu til barna og ungmenna um geðræna erfiðleika foreldra. Fræðsluefni á síðunni:

- Veita stuðning, m.a. með fjölskyldusmiðju og stuðningshópa fyrir ungmenni.

      • Fjölskyldusmiðjur: Okkar heimur býður upp á fjölskyldusmiðjur fyrir fjölskyldur þar sem foreldri eða forsjáraðili glímir við geðrænan vanda. Þær eru haldnar einu sinni í mánuði í 2,5 klukkustund í Reykjavík og eru fjölskyldum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar hér.
      • Stuðningshópur fyrir ungmenni: Okkar heimur er að fara af stað með stuðningshóp fyrir ungmenni á aldrinum 13-17 ára sem eiga foreldra með geðsjúkdóma. Hópurinn fer af stað 8. október kl. 16:30-18:30 og verður haldinn mánaðarlega í framhaldi. Þátttaka er ungmennum að kostnaðarlausu. Hægt er að skrá sig hér.  

- Hvetja til vitundarvakningar um stöðu barna sem alast upp með foreldri með geðrænan vanda en rannsóknir sýna að þessi börn eru í 70% meiri hættu á að þróa sjálf með sér vanda á fullorðinsárum fái þau engan stuðning.

Tengd úrræði

Rafstöðvarvegur 7-9
Hitt húsið - miðstöð ungs fólks
Grófin geðrækt Hafnarstræti 95 Akureyri
Grófin geðrækt
photorealistic mynd fyrir vefsíðu sem endurspeglar létta hreyfingu úti í náttúrunni. Myndin er af einni manneskju í göngu sem lætur henni líða vel. Manneskjan er norræn í útliti
Hreyfiseðill
Björgin geðræktarmiðstöð
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Safnaðarheimili háteigskirkju
Bjargráð - aðstoð fyrir fjölskyldur fanga
Klúbburinn Geysir
Klúbburinn Geysir
Scroll to Top