Litróf einhverfunnar
Í hnotskurn
Þjónusta
Hvert er markmiðið?
Nánari upplýsingar
Einhverfa er heilkenni sem felst í óvenjulegri heilastarfsemi og birtist einkum í takmarkaðri færni í félagslegum samskiptum, sérstakri skynjun, ásamt endurtekningarsamri hegðun og þröngu áhugasviði.
Fjallað er um greiningu á einhverfu, orsakir hennar og meðraskanir, framvindu og horfur, meðferð, þjónustu, fjölskyldur, líf og reynslu einhverfra. Sjónum er einkum beint að börnum og unglingum, en þó einnig að öðrum aldurshópum. Þá eru í bókinni nýjar upplýsingar um sögu einhverfu á Íslandi.
Tíðni einhverfu hefur aukist verulega á undanförnum áratugum og hefur sú aukning vakið upp áleitnar spurningar, jafnvel tortryggni bæði innan vísindasamfélagsins og í þjónustugeiranum. Samfara því hefur umfjöllun um einhverfu aukist gríðarlega á heimsvísu á sviði vísindarannsókna, lista og menningar og í fjölmiðlum en einnig meðal hagsmunasamtaka, foreldra og einstaklinga með einhverfu sem tjá sig opinberlega í æ ríkari mæli.
Bókin er hugsuð fyrir foreldra og aðra ættingja, einhverfa fólkið sjálft, þá sem tengjast einhverfum í starfi, nemendur í framhaldsskólum og á neðri stigum háskóla, svo og aðra sem hafa áhuga á einhverfu.