Lótusapp
Í hnotskurn
Þjónusta
Jóga ♥ Slökun
Hvert er markmiðið?
Nánari upplýsingar
Lótusapp er gjöf hugleiðsluskólans Lótushúss til íslensks samfélags. Það er von okkar að appið muni vera fólki hvatning til að staldra við í erli dagsins og næra og endurhlaða sjálfið. Við trúum því að slík iðkun hafi ekki aðeins jákvæð áhrif fyrir iðkandann heldur fyrir samfélagið allt.
Hugleiðslurnar geta hentað byrjendum jafnt sem lengra komnum. Þær eru sprottnar úr hugmyndafræði RAJA YOGA sem hefur það að markmiði að auka sjálfsþekkingu og draga þannig fram það besta í einstaklingnum.
LÓTUSHÚS er hugleiðsluskóli á Garðatorgi i miðbæ Garðabæjar. Skólinn býður upp á hugleiðslu- og sjálfstyrkingarnámskeið allan ársins hring og hafa þúsundir Íslendinga nýtt sér starfsemi skólans.
Öll námskeið og viðburðir á vegum skólans eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar: www.lotushus.is