Heilaheilsa
Í hnotskurn
Þjónusta
Meðferð ♥ Námskeið ♥ Ráðgjöf ♥ Sálfræðiþjónusta
Fyrir hverja?
Heilaheilsa þjónustar fólk sem hefur fengið væga heilaáverka, s.s. heilahristing, og fjölskyldur þeirra
Hvert er markmiðið?
Markmið Heilaheilsu er að efla heilaheilsu og veita sérhæfða þjónustu eftir heilahristing.
Nánari upplýsingar
Heilaheilsa veitir faglega og trausta þjónustu þar sem áhersla er lögð á að efla heilaheilsu og bæta líðan. Þar er boðið upp á sérhæfða meðferð eftir heilahristing, almenna sálfræðimeðferð, líkamsþjálfun, námskeið og fyrirlestra fyrir fyrirtæki, fagaðila og stofnanir.
Heilaheilsa býður m.a. upp á:
- Netnámskeið um fyrstu skrefin eftir heilahristing og almennt námskeið á einkennum og meðferðarmöguleikum heilahristings.
- Stað - eða netnámskeið um hugræna endurhæfingu/heilaþjálfun þar sem verið er að efla heilaheilsu og hugarstarf.
- Almenn sálfræðimeðferð.
Heilaheilsa leggur áherslu á að vera í samstarfi við íþróttafélög um meðferð eftir heilahristing. Markmið Heilaheilsu eru að koma íþróttafólki aftur til leiks á öruggan hátt og í góðu formi.
Ath! Ef þú ert yngri en 18 ára og/eða fékkst heilahristing fyrir minna en 3. vikum bókar þú tíma með því að senda tölvupóst á olina@heilaheilsa.is