Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Í hnotskurn
Þarf tilvísun? Nei
Aldursflokkur: Fullorðnir
Er úrræðið niðurgreitt? Já
Hvernig er aðgengið? Ágætt, fólk kemst flest án aðstoðar
Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:15 til 15:30 og föstudaga frá kl. 8:15 til 12:00
Þjónusta
Athvarf ♥ Eftirfylgd ♥ Einstaklingsmeðferð ♥ Endurhæfing ♥ Félagsstarf ♥ Fræðsla ♥ Göngur ♥ Handverkshópur ♥ Hópameðferð ♥ Námskeið ♥ Píla ♥ Pool ♥ Ráðgjöf ♥ Virkni
Fyrir hverja?
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er grunnendurhæfingarúrræði og athvarf fyrir fólk með geðheilsuvanda.
Hvert er markmiðið?
Markmið Bjargarinnar eru:
- Að rjúfa félagslega einangrun.
- Að efla sjálfstæði einstaklinga.
- Að auka samfélagsþátttöku einstaklinga.
- Að draga úr stofnanainnlögnum.
- Að auka þekkingu almennings á geðheilbrigðismálum.
- Að þjálfa einstaklinga í atvinnutengdri hegðun og endurhæfa þá til náms eða út á vinnumarkað.
Nánari upplýsingar
Björgin er athvarf og endurhæfing fyrir fólk með geðheilsuvanda. Þjónusta Bargarinnar miðar að því að bæta þjónustu í heimabyggð við einstaklinga sem glíma við geðrænan vanda og til að rjúfa félagslega einangrun. Allir eru velkomnir að koma og fá ráðgjöf. Starfsfólk veitir frekari upplýsingar um leiðir og úrræði sem standa til boða, innan sem utan Bjargarinnar.
Björgin býður upp á margskonar þjónustu og er öllum velkomið að koma og fá ráðgjöf í Björginni. Ekki þarf tilvísun til þess að sækja þjónustu í Björginni. Hægt er að fá frekari upplýsingar hjá starfsfólki.
- Björgina má sækja á eigin forsendum eða með tilvísun.
- Einstaklingar sem sækja Björgina þurfa að greiða 2000 kr. í mánaðargjald. Með því er verið að greiða fyrir aðstöðu og þjónustu Bjargarinnar.