Bæta við úrræði
Bæta við fagaðila
Bæta við samtökum
Bæta við æfingum
Bæta við slökun
Bæta við fræðsluefni
Bæta við vefsíðu
Bæta við smáforriti
Bæta við hlaðvarpi
Bæta við hlaðvarpsþætti
Bæta við bók
Bæta við tímariti

Hugarafl

Í hnotskurn

Þarf tilvísun? Nei
Efnisflokkur: Endurhæfing, Geðheilsa
Staðsetning: Reykjavík
Aldursflokkur: Fullorðnir
Er úrræðið niðurgreitt?
Hvernig er aðgengið? Óvitað

Þjónusta

Eftirfylgd ♥ Einstaklingsmeðferð ♥ Fræðsla ♥ Hópameðferð ♥ Listasmiðjur ♥ Námskeið ♥ Ráðgjöf ♥ Sjálfsstyrking ♥ Slökun ♥ Spilamennska ♥ Stuðningshópar fyrir aðstandendur ♥ Umræðuhópar ♥ Útivist ♥ Vinnustofur

Fyrir hverja?

Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum.

Þátttaka í starfsemi Hugarafls er fyrir öll, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Starfsemin er algjörlega gjaldfrjáls, óháð búsetu og engin krafa er gerð um tilvísanir né geðsjúkdómagreiningar.

Hvert er markmiðið?

Starfsemi Hugarafls er mótuð bæði af einstaklingum með persónulega reynslu af andlegum áskorunum (stundum kallað notendur) og einstaklingum með fagmenntun.

Við leggjum okkur fram um að skapa umhverfi sem ýtir undir valdeflingu og bata einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum og fjölskyldur þeirra. Sérstaða Hugarafls er einstaklingsmiðuð nálgun sem og samvinna fólks sem tekist hefur á við andlegar áskoranir og fagfólks. Við vinnum saman sem jafningjar, tökum sameiginlegar ákvarðanir um starfsemi Hugarafls og erum hvött til að láta í ljós skoðanir okkar. Við berum sameiginlega ábyrgð á hópastarfi, verkefnum og dagskrá Hugarafls.

Allt starf Hugarafls byggist á hugmyndafræði valdeflingar sem mótuð var af Judi Chamberlin sem og batahugmyndafræði Daniels Fishers. Þetta er ekki einungis leiðarljós starfseminnar heldur nýtast fræðin sem grundvöllur í daglegu starfi Hugarafls og sjálfsvinnu einstaklinga. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er á forsendum hvers og eins. Við virðum sjálfræði hvers og eins til að móta sína bataleið.

Nánari upplýsingar

Í hugarafli er veittur einstaklingsbundinn stuðningur við að ná bata og stjórn á eigin lífi. Sérstaða hugarafls er persónuleg nálgun, samstarf fagfólks og notenda geðheilbrigðisþjónustunnar á jafningjagrunni.

Þjónustan er gjaldfrjáls.

Ertu með ábendingar um þetta úrræði sem þú vilt koma á framfæri?
Hafa samband vegna úrræðis

Tengd úrræði